22.1.19

Barnabókaflóðið í Norræna húsinu



Í haust fórum við á sýninguna Barnabókaflóðið í Norræna húsinu. Sýningin stendur til 30. apríl 2019 og er opin alla daga. Aðgangur er ókeypis.


Þetta er kjörinn áfangastaður ef manni langar að gera sér glaðan dag með gormum á aldrinum 5-11 ára. Sýningin sjálf er ævintýraleg en verður ekki minna ævintýraleg ef gormarnir fá að gera sérstaka ferð úr þessu t.d. að fara hjólandi eða í strætó og taka nesti með.


Sýningin er gagnvirk þannig að gormarnir geta gert ýmislegt skemmtilegt á leið sinni í gegnum sýninguna.


Til dæmis að útbúa vegabréf og stimpla í það um leið og þau fara í gegnum sýninguna


Það eru fjölbreytt verkefni í boði, mér fannst skemmtilegt að kubba ljóð um loðnar kjötbollur


á meðan gormurinn gleymdi sér alveg sem skipstjóri!


Við mægðin mælum með Barnabókaflóðinu ;-)




3 comments:

  1. Save a covered compartment or shed for holding play gear and outside toys. Instruct youngsters to return what they use to the capacity territory as opposed to simply tossing it on the ground. kids cars

    ReplyDelete