Ég og maðurinn minn höfum stundum gert jóladagatöl fyrir hvort annað og í ár ákvað ég að vera ótrúlega góð eiginkona og splæsa í bjórdagatal.
Ég arkaði í Vínbúðina og keypti hvorki meira né minna en 18 mismunandi tegundir af jólabjór og svo uppáhaldsbjórtegundir mannsins míns. Konan sem var á kassanum á undan mér var greinilega líka í sömu erindagjörðum og ég, enda sennilega fáir sem annars kaupa 24 staka bjóra!
Ég notaði bréfpoka úr Vínbúðinni til þess að pakka þeim inn
Tölustafina má finna fríkeypis til að prenta út hérna.
Stundum skreytti ég smá með tússpenna
Ég fléttaði meira að segja eitt bandið...
Bjórdagatalið 2014
ótrúlega sniðugt og flottir pokarnir hjá þér:) minn maður hefði nú líka verið ánægður með þetta:)
ReplyDeleteknús Sif
p.s mér finnst orðið fríkeypis alveg yndislegt:)
ReplyDelete/Sif
Ferlega flott hjá þér, hann er væntanlega himinlifandi með þetta :)
ReplyDelete