Ég var svo heppin að fá að fagna þessum áföngum með vinkonum mínum og auðvitað fengu þær allar kort í tilefni dagsins.
Þetta kort var fyrir þrítugsafmæli þar sem þemað var "Midsommer". Ég gat því miður ekki mætt í afmælið með blómakrans um höfuðið en skellti einum á kortið í staðinn.
Svo var það fertugsafmæli og vígsla á sérlega fallegum stimplum, bleki og pappír í stíl!
Síðast en ekki síst útskriftargjöf fyrir góða vinkonu
Í þennan merkimiða notaði ég frítt prentefni (e. free printables) af þessari síðu sem að ég rakst á nýlega (og er vel þess virði að skoða!).
Notaði fiðrildin líka til þess að skreyta gjöfina.