Ég segi fólki gjarna að mig vanti ekki neitt og það er alveg rétt, ég er svo heppinn að eiga nóg af flestu og sérstaklega því sem mestu máli skiptir og fæst ekki keypt fyrir neina peninga.
Þrátt fyrir að vera svona heppinn ætla ég að deila með ykkur óþarfaþránni minni, hvað fallegu og misnytsamlegu hluti og óþarfa ég gæti hugsað mér að splæsa í þessa dagana!
Mig langar mikið í fína myndavél, ég á eina nýlega og fína en mig langar mikið í svona gæðagrip - þó að ég kunni ekkert á hana, þá fær maður frábærar myndir með því að nota bara "Auto" stillinguna!
Það eru margir fallegir hlutir fyrir heimilið á óskalistanum eins og:
Ittaala Mariskooli skálar
Fallegur kökudiskur og kanna úr Mynte línunni frá Ib Laursen
Svona fínar og fallegar vekjaraklukkur á náttborðið
Ég er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af vörunum frá Sveinbjörgu
Eins og þessum æðislegu garðveislubökkum, ég sé í hendi mér marga staði á heimilinu þar sem þeir myndu njóta sín!
Eða þessu notalega ullarteppi (maður myndi hugsa sig tvisvar um að nasla fyrir framan sjónvarpið með svona fínt teppi!)
Það er líka nóg af fallegri íslenski hönnun sem ég gæti hugsað mér að skreyta mig með eins og hálsmen frá Hlín Reykdal
Eða klútur frá AndreA boutiqe
nú eða armband frá Sif Jakobs
Ég læt þetta duga af óþarfaþrá í bili og vona að ég sé ekki búin að smita ykkur!
Stundum verður maður bara að láta það eftir sér að vera með "lang í" veikina :)
ReplyDelete