Hún Aneta kortasnillingur var með kortaáskorun fyrir okkur í Skrapphópnum á Fésbókinni. Útlitið var frjálst en við urðum að nota ákveðna litapallettu. Mér finnst svo frábært hjá henni að standa fyrir svona áskorun svo að ég tók auðvitað þátt.
Kortin hennar Anetu eru mjög ólík einföldu kortunum mínum; rosalega flott og mikil vinna og efni lögð í þau. Það kom mér því skemmtilega á óvart að ég skyldi vinna áskorunina! Svo ekki sé minnst á öll hin kortin sem voru send í áskorunina, hvert öðru fallegra og hugmyndaríkara.
Vinningurinn var ekki af verri endandum:
Núna verð ég bara að skella mér í að nota þetta fínerí.
Enn og aftur, takk fyrir Aneta!
Vá en gaman að vinna, til hamingju með það:)
ReplyDeleteFlott kortið þitt:kr
Sif
Vá en gaman að vinna, til hamingju með það:)
ReplyDeleteFlott kortið þitt:kr
Sif
Fallegt kort hjá þér, einföld eru oft fallegust.
ReplyDeletekv. Hanna
Falleg kort hjá þér :)
ReplyDeleteþið eruð yndi, takk fyrir! :-)
ReplyDeleteTil lukku með þetta elsku Kolla :)
ReplyDeleteEn skemmtilegt :) Ég er ekki bæuin að sjá þetta fyrr en núna!!! Gaman gaman!!! Þakka þér fyrir Kolla og en og aftur: Til hamingju:)xoxo Aneta
ReplyDeleteVel gert! Enda sérstaklega góður kortagerari!
ReplyDelete