Ég gerði þetta ótrúlega sniðuga og sæta kort (þó segi sjálf frá!) fyrir eins árs prinsessu um daginn. Snilldin felst í einfaldleikanum, fjórir ferningar skornir í tvennt, kantarnir rúnnaðir, límt á, tala í miðjuna og maður er kominn með fínasta kort. Ekki skemmir fyrir að kjörið er að nota pappírsafganga og leika sér með alls konar litasamsetningar.
Hugmyndin kemur að sjálfsögðu af Pinterest.
Litirnir í þessu korti voru valdir í stíl við afmælisgjöfina:
svo fann ég meira að segja spennur í stíl!
Kjóllinn er úr lífrænni bómull og spennurnar eru "Fair Trade". Ég er að æfa mig í að versla svona umhverfis- og mannúðarvænt og finnst frábært að það er alltaf að verða ofurlítið auðveldara að nálgast slíkar vörur.
Frabaer samsetning....Flott gjof.
ReplyDeleteBtw vard hugsad til thin um helgina thegar eg sat sveitt vid ad dulla mer vid afmaeliskort...ekkert fancy bara nota "punchers" og lim....sendi ther mynd vid taekifaeri
Brynja
Takk og hlakka til að sjá kortið! :-)
DeleteFrábær hugmynd - takk fyrir að deila. Kemur rosalega vel út hjá þér. Og ég er líka alltaf að æfa mig að versla "meðvitað" og er einmitt sammála að það eru ýmsar leiðir færar í þeim efnum :)
ReplyDeleteAlltaf gaman að sjá nýja lesendur hérna inni, ég datt einmitt inn á síðuna þína um daginn :-) Sérstaklega gaman að heyra af öðrum sem eru að fikra sig áfram í meðvitaðri átt!
DeleteÆðislegt kort og gaman hvað það er í stíl við gjöfina :)
ReplyDeleteSvo æðislega krúttlegt, svo fallegir litir og flott kort:)
ReplyDeleteknús Sif