Ég hef áður sýnt ykkur smádótið sem ég hef fyrir framan útihurðina á stigaganginum. Það er þarna svo að gestirnir mínir fái smá sól í hjartað þegar þeir koma í heimsókn og sem afsökun fyrir mig til þess að kaupa einstaka sinnum nýja hluti til þess að punta með :-)
Um daginn sýndi ég ykkur þetta:
En ég var alls ekki að "fíla" þetta nógu vel.....rautt& bleikt er bara voða lítið ég. Þannig að það breyttist fljótlega í þetta:
Sem að var ágætt en um leið ekkert sérstakt.
Þá sá ég þessa fínu mynd hjá Stínu Sæm
og datt þá í hug að svona penn garðstóll gæti verið málið fyrir mig og stigaganginn!
Þannig að ég skellti mér á útsölu og borgaði ekki nema 1500 krónur fyrir svona sætan stól
Mér finnst hann svo fallegur (og hentugur í svona punt en ekkert endilega til þess að sitja á). Hann er kærkomin tilbreyting frá viðarkollinum góða sem hefur einokað hornið í sennilega 4 ár!
Í dag fann ég svo bráðnauðsynlegan óþarfa sem ég hef verið að svipast eftir undanfarið
dásamlega sæta vírkörfu á 1100 krónur!
Hún flutti að sjálfsögðu strax á stigaganginn!
Rosa cute! Love it...
ReplyDeletetakk :-)
DeleteHvar fékkstu stólinn? Ég hef einmitt verið að spá í svipaðan stól til að hafa við innganginn hjá mér yfir sumarið.
ReplyDeleteStóllinn fæst í Ilvu http://www.ilva.is/?module=shop&prodId=86300311&catId=26&subCatId=129, til í mörgum skemmtilegum litum :-)
DeleteTakk takk, það var þá enginn smá afsláttur!
ReplyDeleteFlott! Hvíti stóllinn kemur vel út!
ReplyDeleteKemur mjög vel út og hvíti stólinn er algjört æði!
ReplyDeleteÉg fékk innblástur héðan, takk fyrir það! :) Nú stendur nákvæmlega eins stóll fyrir utan útidyrnar hjá mér! Ofan á honum er smá fínerí, garðkanna og svoleiðis!
ReplyDeleteEn gaman að heyra :-) ég prófaði eina uppskrift af blogginu þínu um daginn en ég bakaði bara vandræði þann daginn, haha! Við fjölskyldan vorum annars hjá Lárusi ljósmyndara í dag, hann bað fyrir kveðju (sýndi mér myndir af Jóhönnu litlu sem dæmi um fallega haustmynd :-)
Delete