Stína Sæm er með eitt af mínum uppáhalds bloggum og ég ákvað að taka þátt í þessu bloggpartýi hjá henni. Ég á reyndar hvorki garð né pall en ég á svalir!
Svona líta svalirnar mínar úr hversdags:
En eftir að hafa fengið smá ást og umhyggju litu þær svona út:
Aðeins vistlegri, ekki satt? Litli maðurinn svaf og því gat ég sett smá leikhorn á svalirnar, þ.e.a.s. leikhorn og puntudót samtímis!
Við eigum engin almennileg garðhúsgögn en notum í staðinn þetta ofur netta felliborð og setjumst í samanbrjótanlega tjaldstóla (sem eru of ljótir fyrir þetta blogg, en þokkaleg þægilegir og gasalega praktískir þar sem þeir taka lítið pláss í geymslunni).
Ég er sem sagt í þykjustinni sitjandi úti á svölum, sötrandi sódavatn, narta í safaríkar nektarínur og les hið frábæra tímarit í boði náttúrunnar- sumar.
Gvendarbrunnar 2012 í fallega nýja glasinu mínu, sötrað með fallegu röri!
Ég geymdi góssið mitt úti og myndaði aftur þegar farið var að rökkva.
Kerti, teppi og notalegheit
Kertaljós gera alltaf allt svo notalegt og hlýtt
Talandi um kerti þá gerði ég þessa sætu kertastjaka um daginn:
Barnamatskrukkur, límlakk og blúnda.....
....er falleg blanda. Hvort sem er í birtu eða rökkri.
Takk fyrir innlitið!
Takk fyrir innlitið!
Kosy hja ther...Mig langar ad sja bakkann betur...gerdiru hann sjalf?
ReplyDeleteRosa smart
takk, takk :-) hérna http://bullukolla-bullukolla.blogspot.com/2012/07/dossu-innblasinn-bakki.html má sjá bakkann aðeins betur!
DeleteVá hvað þetta er krúttlegt hjá þér, bakkinn flottur og fatið á fætinum sætt, kvöld stemmingin er líka æði :D
ReplyDeleteTakk :-)
DeleteTakk fyrir að mæta í partýið okkar ;)
ReplyDeleteÆðisega krúttlegar og sætar hjá þér svalirnar.
Var einmitt svo að vona að við fengum nú að sjá svona svalastemmningu, elska svona frábærar hugmyndir til að gera pínulítið pláss alveg ofursætt og notalegt.
kv Stína
Takk fyrir :-) Og takk fyrir að halda svona skemmtilegt bloggpartý!
DeleteFallegar svalirnar þínar :-)
ReplyDeleteHvar fékkstu svona sniðugt borð?
Takk :-) Þetta er keypt í IKEA, sennilega fyrir 5 árum. Hérna er svipað á útsölu í ILVU http://www.ilva.is/?module=shop&prodId=940002205&catId=26&subCatId=129. Mér finnst voða þægilegt hvað þetta tekur lítið pláss í geymslunni á veturna :-)
DeleteSvo huggulegt þarna hjá þér! Það þarf sko ekki alltaf stórt pláss til að gera kósý, þessar myndir sanna það :)
ReplyDeleteFrábærar myndir og notaleg stemming. Má ég koma í heimsókn?
ReplyDeleteFlott og narí. Er hægt að ráða þig til að gera báðar mínar svalir svona rosalega kósý?
ReplyDelete