22.4.12

Sjónvarpsævintýrið 21.06.06

Það kviknaði í sjónvarpinu mínu um daginn. Fyrst kom lítill hvellur, svo píp og þar næst ótrúleg bræla af brunnu plasti. Aldrei þessu vant var ég ekki sofandi á sófanum þannig að ég reif tækið úr sambandi og hringdi í pabbi-bjargaðu-mér-hjálparlínuna. Sem betur fer var ekki um eiginlegan eld að ræða heldur hafði sjónvarpið brunnið yfir. Pabbi ráðlagði mér að halda á sjónvarpinu út til að forðast eitraðar plastgufurnar en þar sem handleggirnir á mér eru ekki einn og hálfur metri á lengd hvor, reyndist það illmögulegt fyrr en Jens kom heim úr vinnunni nokkrum tímum síðar. Þangað til voru allir gluggar og hurðin á íbúðinni galopinn og hitastigið um lopapeysu- og ullarsokkastig.
Þá kom næsti hausverkur, og hann stafaði ekki af plastbrælunni! a) fá tjónið bætt b)kaupa nýtt sjónvarp. Þótt ótrúlegt megi virðast í plasmaskjávæðingunni kostar viðbjóðslega venjulegt 29" túbusjónvarp um 60 þúsund krónur. TM-tryggingar voru svo rausnarlegar að bæta okkur um einn þriðja af tjóninu, heilar 23 þúsund krónur. Einkennilegar aðferðir við útreikninga þar á bæ....
Mað péningana í rassvasanum lögðum við Jens galvösk af stað í sjónvarpsleit en sjónvarpsleitin varð að prófsteini í þessu ævintýri. Sama í hvaða verslun við komum urðu sölumenn stórhneykslaðir að við skyldum vera leita að venjulegu túbusjónvarpi en ekki hágæða, nýtísku og rándýru plasmasjónvarpi. Eftir að hafa gengist undir sálfræðipróf sem kannaði geðheilsu okkar (m.a. þjóðerni, neyslufíkn, þjóðfélagsstöðu og fjárhag) var okkur hleypt inn í rykfallnar geymslu með nokkrum eintökum af túbusjónvörpum sem þeir ætluðu að gefa Árbæjarsafni. Vegna slæmrar útkomu sálfræðiprófsins fengum við að kaupa slíkan 28" safngrip á gjafverði, eða um 36 þúsund krónur, sjibbí!
Nú get ég aftur sæl og glöð horft á SkjáEinn í lélegum myndgæðum og bognum skjá. Köttur út í mýri, sett´upp á sig stýri, úti er ævintýri!

No comments:

Post a Comment